Um okkur
R1 ehf. var stofnað af þeim Atla Andréssyni og Sigurði Blomsterberg í desember 2015. Þeir hafa unnið við viðhald, viðgerðir og uppsetningar á myndgreiningarbúnaði og tengdum búnaði ásamt því að fylgjast vel með þróun í þessum geira.
Starfsmenn R1 eru með námskeið og áratuga reynslu á flestar gerðir myndgreiningatækja og tengdum búnaði, einnig höfum við sérhæft okkur í uppsetningum og viðgerðum á tannlæknabúnaði og í kerfisstjórnun tölvukerfa.
Sagan okkar
Við hjá R1 höfum hlotið ISO 9001:2015 vottun á gæðastjórnunarkerfi okkar. Þetta er staðfesting á fagmennsku og skýru verklagi í allri okkar þjónustu. Vottunin er okkar loforð um áreiðanlega þjónustu, öryggi og stöðugar umbætur.
Til að tryggja gæði og fagmennsku í allri starfsemi höfum við sett fram eftirfarandi áherslur í gæðastefnunni okkar:
Skilja og uppfylla þarfir viðskiptavina okkar með því að veita faglega og persónulega þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers og eins viðskiptavinar
Tryggja skjót og árangursrík viðbrögð við þjónustubeiðnum
Ráða til okkar og viðhalda starfsfólki með víðtæka reynslu og sérþekkingu í uppsetningu og viðhaldi tæknibúnaðar
Stuðla að stöðugri þjálfun og þekkingaröflun starfsfólks
Tryggja að öll uppsetning og viðhald sé framkvæmt í samræmi við forskriftir framleiðenda og viðeigandi gæðastaðla
Nýta endurgjöf frá viðskiptavinum og starfsfólki til að greina tækifæri til umbóta í þjónustu og verkferlum
Fylgja öllum gildandi lögum, reglugerðum og stöðlum sem eiga við um sölu og þjónustu á búnaði tengdum heilbrigðistækni